14. apríl 2026
Síðasti verkefnafundur RECET innanum sólarorkuver á Menorku

Verkefnishópur RECET hittist aðra vikuna í mars, á eyjunni Menorku undan ströndum Spánar á Miðjarðarhafinu.
Menorka tilheyrir Baleareyjaklasanum en sólþyrstir Íslendingar þekkja helst stærstu eyju klasans Majorka.
Þetta var síðasti fundur verkefnisins sem haldinn verður í eigin persónu og lagði hópurinn í sameiningu línurnar fyrir síðustu mánuði verkefnisins, sem lýkur í september í ár.
Fundinn sóttu fulltrúar frá Íslandi, Svíþjóð, Danmörku, Slóveníu auk gestgjafanna, heimamanna sem starfa fyrir CIME (Counsell Insular de Menorca). Hér deildu þátttakendur reynslu sinni og lærdómi og greindu frá framgangi.
Þátttakendur eru nú langt komnir með að ná markmiðum verkefnisins, sem sneri með einum eða öðrum hætti að styðja við gerð svæðisbundinna áætlana um loftslagsmál og orkuskipti á sínum heimasvæðum. Sem dæmi þá leiddu Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) gerð slíkrar áætlunar fyrir Norðurland eystra (sjá frétt https://www.ssne.is/is/um-ssne/frettir/loftslagsstefna-ne-1).
CIME nýtti tækifærið og hélt opinn fund um tækifærin í orkuskiptum í samgöngum og breyttar ferðavenjur og þau verkefni sem eru í gangi við uppbyggingu sólarorkuvera, sérstaklega á húsþökum. Þá leiddu fulltrúar RECET verkefnisins vinnustofu um orkusamfélög og gerð og innleiðingu loftslags og orkuskiptaáætlana. Þeir fundir voru ágætlega sóttir af heimafólki.
Hópurinn nýtti líka tækifærið og kynnti sér orkukerfi Menorku.
Á eyjunni búa um 100.000 manns og er mikil ferðamannaeyja. Árlega tala eyjaskeggjar á móti 1,7 milljón ferðamanna sem byrja að streyma til eyjunnar um páska ár hvert, og stendur ferðamannatíminn fram á haust. Þessar miklu sveiflur hafa auðvitað talsverð áhrif á eftirspurn eftir orku á eyjunni. Á Menorku er olíuorkuver sem framleiðir drýgstan hluta þeirrar raforku sem þörf ef fyrir á eyjunni. Undanfarin ár hefir mikið átak verið gert í því að auka hlutdeild sólarorku og eru nokkur sólarorkuver á eyjunni, með uppsett afl sem telja í tugum megavatta.
RECET flokkurinn heimsótti eitt slíkt sólarorkuver sem getur á góðum degi framleitt um 50 MW af raforku, en vegna áskorana með jöfnun framleiðslunnar í raforkukerfi eyjarinnar er sú framleiðslugeta ekki alltaf fullnýtt og þarf þá að grípa til framleiðsluskerðinga. Til að mæta þessu er unnið að því að koma upp batterígeymslum fyrir raforku og efla tenginguna um sæstreng við Majorka.
Við þökkum samstarfsfólki okkar á Menorku fyrir höfðinglegar móttökur og skemmtilega ferð!
Deila frétt

Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.

Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.







