13. apríl 2026

Vel sótt vefþing um orkuskipti í landbúnaði

Mikill áhugi á orkuskiptum í landbúnaði

Eimur, í samstarfi við Orkídeu, hélt síðastliðinn fimmtudag, 9. apríl, vefþing um orkuskipti í landbúnaði. Þingið heppnaðist vel og var þátttaka mjög góð. Ljóst er að málefnið vekur mikinn áhuga, enda snertir það eina af lykilgreinum íslensks samfélags og þætti á borð við eins og sjálfbærni, orkuöryggi og samkeppnishæfni landbúnaðarins.


Á þinginu komu fram fjölbreyttir og afar áhugaverðir fyrirlesarar, bæði innlendir og erlendir, sem miðluðu reynslu, þekkingu og sýn á stöðu og framtíð orkuskipta í greininni. Fyrirlestrarnir voru metnaðarfullir og veittu góða innsýn í þær raunhæfu lausnir sem þegar eru í þróun eða notkun, auk þess að varpa ljósi á tækifærin sem fram undan eru.


Meðal fyrirlesara voru Gestur Pétursson, sem opnaði þingið, Andrew Parsons frá Bannemann sem ræddi tæknilausnir til hreinsunar á lífgasi í erindinu „Stop buying fuel. Start making it“, Katie Hoare frá Trenence Dairy sem ræddi smáframleiðslu með notkun annarra orkugjafa, og Sander Vandenriessche frá InAgro sem fór yfir reynslu af metanknúnum dráttarvélum í verkefninu Value4Farm.


Í seinni hluta þingsins fjallaði Sigríður Ólafsdóttir frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins um rekstrarleg tækifæri og áskoranir orkuskipta, Eiður Guðmundsson frá Sorpu deildi reynslu af notkun metanknúinna dráttarvéla og Steinþór Logi Arnarson, formaður Sambands ungra bænda, ræddi um orku í vasa bænda og mikilvægi hagkvæmra lausna.

Fjallað var meðal annars um rafvæðingu og metanvæðingu landbúnaðartækja, sem og framleiðslu og nýtingu metans sem orkugjafa. Einnig var farið yfir hvernig regluverk og hvatar geta haft áhrif á framvindu orkuskipta, auk þess sem alþjóðleg dæmi voru tekin fyrir og borin saman við íslenskar aðstæður.


Markmið þingsins var að draga fram þau tækifæri sem felast í auknu orkusjálfstæði landbúnaðarins og stuðla að upplýstri umræðu um næstu skref. Sú umræða einkenndist af raunsæi og góðum skilningi á rekstrarumhverfi bænda, þar sem lögð var áhersla á að orkuskipti eru ekki aðeins tæknilegt verkefni heldur einnig samfélagslegt.

Aðstandendur þingsins, Eimur og Orkidea, lýsa yfir mikilli ánægju með hvernig til tókst og þann áhuga sem sýndur var. Vefþingið er hluti af LIFE verkefninu RECET og Horizon Europe verkefninu Value4Farm og er innlegg í umræðu og þróun á sviði orkuskipta í íslenskum landbúnaði.


Að lokum er bent á að hægt er að horfa á upptökur allra erinda vefþingsins á YouTube-rás Eims: https://www.youtube.com/@EimurEimur






Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.
31. ágúst 2026
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.