21. maí 2025
Karen og Skúli fyrirlesarar á Samorkuþingi

Samorkuþing verður haldið í Hofi á Akureyri dagana 22. – 23. maí 2025.
Samorkuþing er stærsta fagráðstefna landsins í orku- og veitutengdri starfsemi og er haldið á þriggja ára fresti á Akureyri.
Eimur verður virkur þátttakandi á Samorkuþingi í Hofi í ár, en Karen Mist Kristjánsdóttir og Skúli Gunnar Árnason, starfsmenn hjá Eimi munu halda erindi á ráðstefnunni.
Orka úr úrgangi - verðmæti í fráveitu og öðrum lífmassa
23.maí 2025 kl. 09:42 – 09:56
Staðsetning: Hamrar
Karen Mist mun fjalla um hvernig breyta má lífmassa í orku. Hún mun draga fram tvö raunveruleg dæmi úr nærumhverfi sem sýna má hvernig nýta má lífmassa til lífgasframleiðslu en einnig hvernig nýta má lífrænt efni úr fráveitu frá matvælaiðnaði til orkuframleiðslu.
Orkan til sveita - Orkusamfélög á Íslandi
23. maí 2025 kl. 11:00 – 11:10
Staðsetning: Hamrar
Skúli Gunnar mun fjalla um birtuorku og orkusamfélög á Íslandi. Hann mun fjalla um hlutverk orkusamfélaga og hvernig þau geta nýst með birtuorku til þess að ná fram aukinni hagkvæmni í ákveðnum geirum og landsvæðum.
Nánari upplýsingar um Samorkuþing má finna hér: https://samorkuthing.is/dagskra/
Deila frétt

Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.








